10.11.2007 | 09:11
Söluræður
Sé í þeim frísklegu 24 stundum að sagt er í undirfyrirsögn ágætrar umfjöllunar;
24 stundir fjalla ítarlega um íslenskan samkeppnismarkað
Einhverntíma, einhversstaðar hefi undirfyrirsögnin, íslenskur samkeppnismarkaður, verið nægjanleg.
En það er komin einhverskonar auglýsandi sjálfshælni úr sjónvarpi inn í prentmiðlana. Það er auðvelt að heyra fyrir sér röddina í Sigmundi Erni ef maður les í hljóði; Stöð tvö fjalla ítarlega um íslenskan samkeppnismarkað og þá leggur maður áherslu á ítarlega og teigir það aðeins. Ekta !
Þetta minnir mig á námsgrein sem kennd er öllum aldurshópum í grunnskólanum sem strákurinn minn útskrifaðist úr í vor. Hún heitir Markviss málörvun.
Er ekki bara hroki að kalla kalla námsgreinina sína markvissa eitthvað? Aldrei var hann í Góðri dönsku, Réttri stærðfræði, Skipulögðum íþróttum eða Vandaðri líffræði.
En í ljósi þessarar nýju tísku lýsi ég því yfir að í þessu bloggi mun ég fjalla af skynsemi og innsæi um samfélag og fólk með þeim hætti að aðdáun mun vekja. Stungið verður af fimi og smekkvísi á kýlum sem aðrir hafa ekki snert á með sama hætti. En einnig verður fjallað af næmni og hlýju um persónuleg málefni svo aðrir hafi gagn af.
Selur þetta?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Facebook
Athugasemdir
Það er gott í svona tilvikum að prófa að setja upp andstæðu þess sem sagt er: Þá kennum við ómarkvissa málörvun.
Ef andstæðan er bull, er það sem sagt er líklega bull. Þetta er ekki óbrigðult en hefur reynst ágætlega.
Sveinn Ólafsson, 11.11.2007 kl. 00:17
Takk fyrir þessa ábendingu Sveinn.
Hörður Svavarsson, 11.11.2007 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.