24.1.2008 | 00:52
Killer Boogie
Í dag tekur við nýr borgarstjórnarmeirihluti í höfuðborg Íslands. Atburðarásin er búin að vera undarleg, svolítið geggjuð. Eiginlega of ótrúleg til að hægt sé að taka niðurstöðuna alvarlega. Það er ekki hægt að nenna því að hafa áhyggjur af þessu.
Þeyr er málið.
Einu sinni sat ég heila nótt með Hallgrími Gröndal úti í Tónabæ og upplifði Þey. Það var einhverskonar tónlistarmaraþon í gangi, til styrktar einhverju mjög göfugu. Víman af Þey var engu lík og ég hef alltaf saknað hennar.
Þetta myndband er frábært. Sigtryggur og Þorsteinn Magnússon svo ungir að þeir eru vart þekkjanlegir. Ekkert hefur breyst. Allt er eins. Sama tilfinning og þegar Sykurmolarnir gengu aftur í höllinni fyrir rúmu ári. Ruddalegur takturinn hljómar áfram í kollinum. Killer Boogie - til hamingju Ísland.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:53 | Facebook
Athugasemdir
Flottir. Steini Magg þarna sléttur og sætur. Næstum eins og litlibróðir Mr. Bean að sjá.
Nú er Bingi hættur. Hausarnir fjúka og Bútusar og Júdasar berast á banaspjótum við Quislinga. Þetta er geggjaður farsi, en ég held að hann eigi eftir að kosta okkur Orkuna um síðir. ´Held að taflið snúist um það.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.1.2008 kl. 01:03
Þú færir fréttir Jón Steinar
Framsókn - búin.
Hörður Svavarsson, 24.1.2008 kl. 01:13
Þetta kallar sko á nostalgíu ...
Gísli Hjálmar , 24.1.2008 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.