26.12.2007 | 12:59
Áhyggjur
"Ég vil ekki verða sex ára" tilkynnir prinsessan með grátstafinn í kverkunum.
"Allt í lagi ástin mín, þú þarft ekkert að vera sex ára núna" fullyrðir pabbinn vitandi að þegar maður er þriggja ára er töluvert langt í sex ára aldurinn.
"En afhverju villt þú ekki verða sex ára?"
Og prinsessan svarar með brostinni röddu:
"Af því ég vil ekki missa allar tennurnar!"
Athugasemdir
Höddi ... nú er kominn tími á söguna um Tannálfinn góða.
Bið að heilsa á heimilið og fer að kíkja í heimsókn.
Gísli Hjálmar , 26.12.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.